Í raun er þetta 65,8% stuðningur

Þar sem 30,8% kosningabæra manna nýttu ekki sinn kosningarétt, voru þeir í raun að styðja áframhaldandi setu Ólafs.
Þá eru í raun 65,8% kosningabæra manna sem styðja Ólaf.
mbl.is Segir kosningu Ólafs ekki sannfærandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kostnaður við að tryggja að fullu innistæður á hefðbundnum innlánsreikningum

Mikið hefur verið rætt og skrifað um skudastöðu heimilina í landinu og hvort sanngirni sé í því að leiðrétta hana. Minna hefur verið rætt og skrifað um hvort það hafi verið sanngjarnt að tryggja að fullu innistæður á hefðbundnum innlánsreikningum eins og gert var með neyðarlögunum og hvað það hafi kostað Ríkissjóð. Gaman væri að sjá tölulegar upplýsingar um þann kostnað og hvernig hann skiptist niður á reikningseigendur. Þess vegna spyr ég:

1. Hve há var upphæðin sem greitt var yfir lögbundna hámarkstryggingu?

2. Hvernig skiptist hún milli eistaklinga og fyrirtækja?

3. Hve margir fengu greitt undir 2 milljónir?

4. Hve margir fengu greitt 2 til 5 milljónir?

5. Hve margir fengu greitt 5 til 10 milljónir?

6. Hve margir fengu greitt yfir 10 milljónir?

Ég hvet eindregið fólk að þrýsta á um að svör fáist við þessum spurningum því nauðsynlegt er að hafa þau með í umræðunni um hvort réttlæti sé í því að skuldarar einir beri kostnaðinn vegna gengishrunsins og vísitöluhækkunarinnar í kjölfar hrunsins.

Mjög líklegt er að nokkrir ef ekki margir af þeim sem fengu þessar greiðslur hafa hagnast á útrásarævintýrinu og hafa verið komnir með fjármagnið í skjól á verðtryggða reikninga og hafa á þessu ári fengið ofan á þær fulla vísitöluhækkun. Er þetta sanngirni eins og almenningur vill hana?

 

 


Um bloggið

Jóhann Ásberg Eiríksson

Höfundur

Jóhann Ásberg Eiríksson
Jóhann Ásberg Eiríksson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband